Jóhannsbikar 2025

Þetta árið var það Skíðafélagið Mývetningur sem fékk Jóhannsbikarinn (Jákvæðnis bikarin). 

Bikarinn er veittur fyrir glaða og jákvæða framkomu og hegðun á meðan móti stendur. Sérstök nefnd á vegum mótsins velur eitt félag, þar sem horft er yfir hópinn og eru engir undanskildir. Litið er til hegðunar foreldra, þjálfara og keppenda. En þannig viljum við hafa þetta að allir séu saman í því að skapa stemmningu, gleði og góðar minningar í sportinu okkar.

Í ár eins og áður var valið erfitt, þar sem allir voru í góðum gír, en Mývetningar voru með mjög góða liðsheild, hvöttu hvort annað vel áfram í brekkunni, lauginni og á verðlaunaafhendingu og voru áberandi á mörgum sviðum og eru því vel að viðurkenningunni komin í ár.

Skíðafélagið Mývetningur var  hressa keppendur, fullt af foreldrum og áhangendum.

Til hamingju Skíðafélag Mývetninga og haldið áfram að njóta í brekkunum ;)