20 ár frá Ólympíuleikunum í Calgary þar sem Daníel Hilmarsson keppti.

Í dag eru 20 ár liðin frá því að Ólympíuleikarnir í Calgary í Kanada voru formlega settir. Íslendingar áttu þrjá keppendur í skíðagreinum á þeim leikum, þau Einar Ólafsson sem keppti í 30km og 50km göngu, Daníel Hilmarsson sem keppti í svigi, stórsvigi og risasvigi og Guðrúnu H. Kristjánsdóttur sem keppti í stórsvigi. Bestan árangur náði Daníel í svigi er hann hafnaði í 24. sæti af 107 keppendum á tímanum 1:55,29 mín. Leikarnir sjálfir fóru fram á 16 dögum og í fyrsta skipti var keppt í risasvigi og alpatvíkeppni.