36 tíma opnun í Hlíðarfjalli

Formlega er skíðavertíðinni lokið í Hlíðarfjalli en ákveðið hefur verið að framlengja og verða skíðalyfturnar ræstar aftur kl. 15 föstudaginn 6. maí og ganga viðstöðulaust til kl. 23 laugardaginn 7. maí Fólk getur því rennt sér í vorrökkrinu aðfaranótt laugardagsins og fagnað dagrenningu á laugardagsmorgun á skíðum. Við viljum benda á að þeir sem eiga vetraarkort á Dalvík og hafa ekki nýtt sér Norðurlandskortið í Hlíðarfjalli geta notað það í þessari opnun sem er framundan og því tilvalið að ljúka skíðavetrinum með því að renna sér í Hlíðarfjalli hvort heldur það er að nóttu sem degi.