Æfingar 12 ára og eldri.

Eins og áður hefur komið fram hefur elsti flokkur skíðafélagins 12 ára og eldri verið mikið á ferðinni.
Í byrjun desember hélt hópurinn til Noregs og náði 8 dögum við mjög fínar aðstæður í Oppdal. Eftir að heim var komið voru aðstæður mjög fínar og héldu æfingar áfram. Í desember náðust 25 æfingar sem verður að teljast nokkuð gott svona miðað við aðstæður síðasta árs. Allt lítur út fyrir áframhaldandi æfingar enda aðstæður í fjallinu mjög góðar þessa daganna.