Í vikunni hefjast allar æfingar hjá Skíðafélagi Dalvíkur. Þjálfarar okkar í vetur eru þau Sveinn Torfason sem verður með 7. bekk og eldri iðkendur. Unnar Már Sveinbjarnarson þjálfar 3.-4. bekk og 5.-6. bekk. Sólrún Anna Óskarsdóttir og Harpa Rut Heimisdóttir sjá svo um 1.-2. bekk, leiktímann og Snillingana. Æfingatöfluna er hægt að sjá á tenglinum hér að neðan og á facebook-síðu Skíðafélags Dalvíkur.