24.11.2011
Úthlutað er úr Afreksmannasjóði UMSE, 15. desember n.k.
Umsóknarfrestur i sjóðinn skulu berast skrifstofu UMSE fyrir 1.
desember. Tilgangur sjóðsins er að styrkja eyfirska afreksmenn til
æfinga og keppni. Stjórn sjóðsins er stjórn UMSE og sér hún um
úthlutun.
Úthlutun úr Afreksmannasjóði skiptist í A og B flokk. Í A flokki hafa
þeir rétt til styrkveitinga sem skara fram úr í íþróttagrein sinni
t.a.m. eru í landsliði, sigra á Íslandsmeistaramóti, setja Íslandsmet
eða á annan hátt sýna að þeir eru afreksmenn í íþróttum. Í B flokki
eru styrkveitingar til íþróttafólks sem sýnir stórstígar framfarir í
grein sinni. Um er að ræða æfinga og ferðastyrkir til efnilegra
íþróttamanna.Til að hljóta styrk þurfa viðkomandi íþróttamenn eða
félög þeirra að sækja skriflega um til sjóðsstjórnar og jafnframt að
gera grein fyrir ástæðum umsóknarinnar. Einnig getur sjóðsstjórn veitt
styrk til einstaklinga eða hóps þó ekki liggi fyrir skrifleg umsókn
viðkomandi, telji hún það samkvæmt reglum og anda sjóðsins.
Nánar um reglur sjóðins er að finna á heimasíðu UMSE: www.umse.is