Andrea á Ólympíuhátið Evrópuæskunnar.

Sunnudaginn 25. janúar n.k. verður 12. Vetrarólympíuhátíð Evrópuæskunnar sett í Vorarlberg í Austurríki. Í ár eru leikarnir samvinnuverkefni Ólympíunefnda Austurríkis og Liechtenstein. Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hefur samþykkt tilnefningar Skíðasambands Íslands (SKÍ) og Skautasambands Íslands (ÍSS) vegna viðburðarins. Ísland sendir að þessu sinni 8 keppendur til leiks og keppa þau í þremur íþróttagreinum. Fimm keppendur munu keppa í svigi og stórsvigi á hátíðinni, tveir keppa í skíðagöngu og ein stúlka keppir í listhlaupi á skautum. Íslenski hópurinn heldur utan á laugardaginn og kemur heim viku síðar. Hægt er að fylgjast með Ólympíuhátíðinni á síðunni http://www.eyowf2015.org Einnig verða birtar fréttir á heimasíðu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands www.isi.is Þátttakendur: Arnar Birkir Dansson keppandi – alpagreinar Andrea Björk Birkisdóttir keppandi – alpagreinar Elísa Arna Hilmarsdóttir keppandi – alpagreinar Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir keppandi – alpagreinar María Eva Eyjólfsdóttir keppandi – alpagreinar Kristín Valdís Örnólfsdóttir keppandi – listhlaup á skautum Albert Jónsson keppandi – skíðagöngu Dagur Benediktsson keppandi – skíðagöngu Örvar Ólafsson aðalfararstjóri Mundína Ásdís Kristinsdóttir sjúkraþjálfari John Detter Kauffman flokksstjóri og þjálfari, listhlaup Kristinn Magnússon flokksstjóri og þjálfari, alpagreinar Steven Gromatka flokksstjóri og þjálfari, skíðaganga