21.07.2016
Á dögunum gaf Skíðasamband Ísalnds út lista yfir landsliðsfólk sambandsins fyrir komandi vertíð. Þar á Skíðafélag Dalvíkur einn fulltrúa, en það er Andrea Björk Birkisdóttir sem býr og æfir í Geilo í Noregi.
Óskum við Andreu til hamingju með sætið.
Frétt af heimasíðu ski.is
júl. 2016
Skíðasamband Íslands hefur valið landslið í alpagreinum fyrir komandi vetur. Stærsta verkefni vetrarins verður án efa HM í St. Moritz í Sviss sem fer fram í febrúar, en ásamt því verður tekið þátt á HM unglinga, Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar og alþjóðlega FIS mótum. Komandi vetur er líka mikilvægur uppá lágmörk fyrir ÓL 2018.
A-landslið:
Freydís Halla Einarsdóttir
Helga María Vilhjálmsdóttir
María Guðmundsdóttir
Sturla Snær Snorrason
B-landslið:
Andrea Björk Birkisdóttir
Bjarki Guðjónsson
Björn Ásgeir Guðmundsson
Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir
Jón Gunnar Guðmundsson
Katla Björg Dagbjartsdóttir
Kristinn Logi Auðunsson
Magnús Finnsson
Sigurður Hauksson