09.03.2016
41. Andrésar andar leikarnir fara fram á Akureyri dagana 20.-23. apríl. Keppt verður í alpagreinum, skíðagöngu og á snjóbrettum.
Skráning er fyrir börn fædd 2000-2009 (6-15 ára) og fer hún fram í Brekkuseli:
Miðvikudaginn 9. mars kl. 16:00 - 18:00
Fimmtudaginn 10. mars kl. 16:00- 18:00
Mótsgjald er 4.800 kr. Lyftugjald er ekki innifalið í þessu verði.
Við skráningu eru mótsgjöldin eingöngu greidd.
Vinsamlegast athugið að það þarf að vera búið að greiða æfingagjöld í æskuræktina til þess að geta skráð á Andrés.
Við værum mjög þakklát fyrir ef foreldrar gætu borgað mótsgjaldið með pening en auðvitað verðum við með posa á staðnum líka.
Foreldrafélagið greiðir gistingu fyrir keppendur og foreldra og 2 x kvöldmat fyrir keppendur. Einnig fá keppendur morgunmat og nesti í fjallið.
Ef eitthvað er óljóst, þá endilega hafið samband við mig í síma 8476986 eða katla@dalvikurbyggd.is
Við munum síðan boða til fundar þegar nær dregur.
Kv, foreldrafélagið.