Bikarmót í flokki 13-14 ára 22 og 23. janúar 2011

Skíðafélag Dalvíkur og Skíðafélag Ólafsfjarðar bjóða til bikarmóts SKI og Slippsins í flokki 13-14 ára. Mótið fer fram dagana 22 og 23. Janúar 2011. Skráningar í mótið þurfa að berast á netfangið skidalvik@skidalvik.is fyrir kl. 18:00 miðvikudaginn 19. janúar. Upplýsingar um gistimöguleika, veitingastaði og samgönur er að finna á heimasíðum bæjanna sem eru www.dalvik.is og www.fjallabyggd.is. undir ferðaþjónusta. Einnig er möguleiki að fá gistingu í skíðaskálanum Brekkuseli á Dalvík en þar gefur Magnús upplýsingar í síma 4661010 eða í síma 892-2604 og í skíðaskálanum Tindaöxl Ólafsfirði, upplýsingar um það er hægt að fá í síma 894-8299. Dagskrá mótsins verður send út þriðjudaginn 18. janúar. Upplýsingar um mótahaldið gefur Óskar Óskarsson, skario@simnet.is eða í síma 8983589 eftir kl. 20.00 á kvöldin. Skíðakveðjur. Skíðafélag Ólafsfjarðar Skíðafélag Dalvíkur