09.04.2015
Mótsboð í Bikarmót SKI.
Skíðafélag Dalvíkur bíður til bikarmóts SKI í flokki 14-15 ára. Mótið fer fram á Dalvík dagana 18 og 19 apríl 2015.
Skráningar í mótið þurfa að berast á netfangið skidalvik@skidalvik.is
fyrir kl. 18:00 miðvikudaginn 15. Apríl.
Upplýsingar um gistimöguleika, veitingastaði og samgöngur er að finna á www.dalvikurbyggd.is. undir ferðaþjónusta.
Hægt er að fá gistingu í skíðaskálanum Brekkuseli. Upplýsingar í síma 4661010
Dagskrá mótsins verður send út föstudaginn 10. apríl.
Upplýsingar um mótahaldið gefur Óskar Óskarsson, skario@simnet.is eða í síma 8983589 eftir kl. 20.00 á kvöldin.
Skíðakveðjur.
Skíðafélag Dalvíkur