Bikarmót SKI og N1 um næstu helgi.

Skíðafélag Dalvíkur og Skíðafélag Ólafsfjarðar bjóða til bikarmóts SKI og N1 í flokki 15 ára og eldri, haldið á Dalvík og á Ólafsfirði 23. og 24. febrúar nk.Skráningar í mótið þurfa að berast á netfangið skidalvik@skidalvik.is fyrir kl. 20:00 miðvikudaginn 20. febrúar á eyðublaði sem finna má á heimasíðu SKI undir ýmislegt, merkt skráningareyðublað. Þar þurfa allar upplýsingar að koma fram sem beðið er um. Upplýsingar um gistimöguleika, veitingastaði og samgönur er að finna á heimasíðum bæjanna sem eru www.dalvik.is og www.olafsfjordur.is. undir ferðaþjónusta. Einnig er möguleiki að fá gistingu í skíðaskálanum Tindaöxl Ólafsfirði, upplýsingar um það er hægt að fá í síma 8656042 og í skíðaskálanum Brekkuseli á Dalvík en þar gefur Bergljót upplýsingar í 4661010 eða í síma 8209408. Dagskrá Föstudagur 22. febrúar: Kl. 20:00 Farastjórafundur í húsnæði ÚIÓ, Ólafsfirði. Laugardagur 23. febrúar: Svig. Kl. 10:00 Fyrri ferð, stúlkur - konur. Kl. 10:30 Fyrri ferð, piltar - karlar. Kl. 12:45 Seinni ferð, stúlkur - konur. Kl. 13:15 Seinni ferð, piltar - karlar. Kl. 14:00 Fararstjórafundur á mótsstað. Verðlaunaafhending strax að móti loknu á mótsstað. Sunnudagur 24. febrúar: Stórsvig Dalvík. Kl. 10:00 Fyrri ferð, piltar - karlar. Kl. 10:30 Fyrri ferð, stúlkur - konur. Kl. 13:00 Seinni ferð, piltar - karlar. Kl. 13:30 Seinni ferð, stúlkur - konur. Verðlaunaafhending strax að móti loknu við Brekkusel. Mótshaldarar áskilja sér rétt til breytinga á dagskrá Skíðafélögin á Dalvík og á Ólafsfirði