Bikarmót SKI og Samskipa í flokki 12-13 og 14-15 ára.

Bikarmót SKI og Samskipa í flokki 12-13 ára og 14-15 ára verður haldið á Dalvík og Ólafsfirði 6-7. febrúar 2016. Þátttökutilkynningar í mótið þurfa að berast á netfangið skidalvik@skidalvik.is fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 3. febrúar. Upplýsingar um gistimöguleika, veitingastaði og samgöngur er að finna á www.dalvikurbyggd.is. og www.fjallabyggd.is undir ferðaþjónusta. Upplýsingar um mótahaldið gefur Óskar Óskarsson, skario@simnet.is eða í síma 8983589 eftir kl. 20.00 á kvöldin. Skíðakveðjur. Skíðafélag Dalvíkur Skíðafélag Ólafsfjarðar