23.02.2009
Um næstu helgi fer fram Bikarmót SKI og Slippsinns í flokki 13-14 ára. Það eru skíðafélögin á Dalvík og á Ólafsfirði sem halda móið.
Skráningar í mótið þurfa að berast á netfangið skidalvik@skidalvik.is
fyrir kl. 18:00 miðvikudaginn 25. febrúar.
Upplýsingar um gistimöguleika, veitingastaði og samgönur er að finna á heimasíðum bæjanna sem eru www.dalvik.is og www.fjallabyggd.is. undir ferðaþjónusta.
Einnig er möguleiki að fá gistingu í skíðaskálanum Tindaöxl Ólafsfirði, upplýsingar um það er hægt að fá í síma 895-3267 og í skíðaskálanum Brekkuseli á Dalvík en þar gefur Gerður upplýsingar í 4661010 eða í síma 8482610.
Upplýsingar um mótahaldið gefur Óskar Óskarsson, skario@simnet.is eða í síma 8983589 eftir kl. 20.00 á kvöldin.
Skíðafélögin á Dalvík og á Ólafsfirði.