Bikarmót SKI og Slippsins í flokki 13-14 ára

Bikarmót SKI og Slippsins í flokki 13-14 ára verður haldið á Dalvík og á Ólafsfirði 30-31.janúar nk. Skráningar í mótið þurfa að berast á netfangið skidalvik@skidalvik.is fyrir kl. 18:00 miðvikudaginn 27. janúar. Upplýsingar um gistimöguleika, veitingastaði og samgönur er að finna á heimasíðum bæjanna sem eru www.dalvik.is og www.fjallabyggd.is. undir ferðaþjónusta. Einnig er möguleiki að fá gistingu í skíðaskálanum Brekkuseli á Dalvík en þar gefur Magnús upplýsingar í síma 4661010 eða í síma 892-2604 og í skíðaskálanum Tindaöxl Ólafsfirði, upplýsingar um það er hægt að fá í síma 894-8299. Dagskrá mótsins verður send út þriðjudaginn 26. janúar. Upplýsingar um mótahaldið gefur Óskar Óskarsson, skario@simnet.is eða í síma 8983589 eftir kl. 20.00 á kvöldin. Með skíðakveðjum! Skíðafélag Dalvíkur Skíðafélag Ólafsfjarðar