Björgvin Björgvinsson skíðamaður ársins.

Björgvin Björgvinsson Dalvík skíðamaður ársins 2011. Björgvin Björgvinsson fjórfaldur Íslandsmeistari á skíðum er skíðamaður ársins 2011. Síðasta vor sigraði Björgvin í svigi, stórsvigi, samhliðasvigi og alpatvíkeppni á skíðamóti Íslands. Einnig varð Björgvin bikarmeistari Skíðasambands Íslands. Á heimslista Alþjóða skíðasambandsins er Björgvin í 73. sæti í svigi eftir að hafa komist hæst í 51. sæti. Því miður tilkynnti Björgvin í sumar að hann leggði skíðin á hilluna og er ástæða þess mikill fjárhagslegur kostnaður afreksmanns á skíðum við að halda sér í fremstu röð. Íris Guðmundsdóttir Akureyri skíðakona ársins 2011 Írís Guðmundsdóttir hefur verið fremsta skíðakona landsins undanfarin ár. Síðastliðinn vetur náði hún sínum besta árangri á sterku alþjóðlegu svigmóti í Noregi þegar hún varð í 2. sæti og fékk 35,86 FIS stig. Írís keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistarmótinu á skíðum í Garmisch-Partenkirchen en féll úr leik í fyrri umferð í svigi og síðari umferð í stórsvigi eftir að hafa verið í 55. sæti eftir fyrri umferð. Í vor varð Írís Íslandsmeistari á skíðum í svigi, stórsvigi og alpatvíkeppni. Á heimslista Alþjóða skíðasambandsins er Írís í 502. sæti í svigi og 749. sæti í stórsvigi. Þrátt fyrir góðan árangur síðastliðinn vetur og undanfarin ár þá hefur Írís lagt skíðin á hilluna. Endurtekin meiðsli og mikill kostnaður við að vera í fremstu röð sem skíðamaður vega þungt í þeirri ákvörðun.