10.04.2004
Í dag laugardaginn 10 apríl verður skíðasvæðið opið frá kl. 10-17. Hér er gott veður og skíðafæri. Það verður mikið um að vera hér í dag og er dagskáin hér að neðan.
Opið 10 - 17.00. - 10.30-12.00: Ævintýraferð um svæðið fyrir börn fædd 1996 og 1997 sem eru vel skíðandi. Í upphafi stóð til að yngri börn ættu kost á að fara í þessa ferð en fallið hefur verið frá því í þetta sinn. Foreldrar eru hvattir til að taka þátt.
Þrautabraut fyrir yngstu kynslóðina allan daginn.
13.00 spilar Ari í Árgerði
11.00 - 15.00 sýnir Íslandsmeistarinn í klakaskurði listir sínar og býr til fjölmörg listaverk.
Opinn hljóðnemi 11.00 - 16.00
15.00 Hundur í óskilum á svölum skálans og upp í brekku
Snjólistaverkasamkeppni kl 13 -- 15.00 - KL 14.00 Atriði úr Svarfdælasögu - Troðaraferðir - Barnagæsla gegn vægu gjaldi
Dalvíkurkaupst 30 ára. Frá kl 14.00 - 17.00 - Kaffiboð í Víkurröst - Allir velkomnir - Björgunarsveitin á Dalvík með sýningu á búnaði og dagskrá fyrir börnin.
Björgunarsveitin á Dalvík Verður með ferðir upp um fjöll og fyrnindi á sleðum og snjóbil, gegn vægu gjaldi sem rennur beint til eftirlifandi unnustu "Mumma" Guðmundar Jóns Magnússonar heitins sem lést fyrir stuttu í vélsleðaslysi.
Sundlaug Dalvíkur Opið til kl. 22:00 en eftir kl. 19:00 verður " Kósy" kvöld á rómantískum nótum, ilmur af ilmkertum og reykelsi í húsinu og eimbaðið ilmar af kærleika!!! Kerti og huggulegheit, ljúf tónlist og afslöppun í pottunum og lauginni. Neðansjávartónlist í lauginni. Dagskráin eftir kl. 19:00 miðuð við 18 ára og eldri en allir velkomnir. Óvæntar uppákomur.
Kaffihúsið Sogn Opið alla páskana - Ýmsar veitingar á boðstólnum.
Byggðasafnið Dalvík Opið 12.00 - 15.00 - Nýjungar og breytingar. Vertu velkominn.
Fjörfiskur ( Gamla Menning ) Opið 22.00 - 04.00 Lokakvöld Fjörfisks með húsið - Lokadansleikur hljómsveitin Arizona.
Íþróttamiðstöð Ólafsfjarðar Opið frá kl. 10:00 - 17:00 .Sundlaug - Tækjasalur - Íþróttahús - Páskatilboð í íþróttasal.
Glaumbær Ólafsfirði Opið 11:00-24:00
Dóttir Skraddarans, Gallerý og vinnustofa Opið 13:00-17:00 Gallerýið sett í sparibúning í tilefni páskadagskrár og 30 ára afmælis Dalvíkurkaupstaðar
Leikfélag Dalvíkur /
Karlakór Dalvíkur Svarfdælasaga - sýning í Ungó á Dalvík kl. 21 Miðapantanir í síma 868-9706