Byrjendakennsla.

Þriðjudaginn 18. janúar hefst átta tíma byrjendanámskeið fyrir börn fædd 2000 og fyrr. Kennt verður í tvær vikur á eftirtöldum dögum einn tíma í senn: Þriðjudaginn 18. janúar frá kl. 17:00-18:00 Miðvikudaginn 19. janúar frá kl. 17:00-18:00 Föstudaginn 21. janúar frá kl. 17:00-18:00 Laugardaginn 22. janúar frá kl. 11:00-12:00 Mánudaginn 24. janúar frá kl. 17:00-18:00 Miðvikudaginn 26. janúar frá kl. 17:00-18:00 Fimmtudaginn 27. janúar frá kl. 17:00-18:00 Laugardaginn 29. janúar frá kl. 11:00-12:00 Skráning fer fram á skíðasvæðinu eða í síma 4661010 á opnunartíma fram að námskeiðinu. Námskeiðið kostar 7000 krónur og er leiktímagjaldið innifalið en þegar börn eru orðin alveg sjálfbjarga á skíðum og í lyftur færast þau upp í leiktímann sem er í allan vetur.