Byrjendakennsla

Byrjendakennsla fyrir börn fædd árið 2006 og fyrr hefst þriðjudaginn 14. desember kl. 17:30 ef næg þátttaka fæst og verður námskeiðið í heild 8 tímar. Upplýsingar um næstu tíma verða gefnar í fyrsta tímanum. Stefnt er að því að klára námskeiðið fyrir áramót. Ef ekki verður næg þátttaka þá frestast námskeiðið fram yfir áramót. Skráning fer fram á skíðasvæðinu í síma 4661010 eða á staðnum á opnunartíma fyrir sunnudaginn 12. desember. Námskeiðsgjald er 10.000 kr. og er leiktímagjald innifalið í því verði en um leið og börnin eru orðin sjálfbjarga í lyftur færast þau yfir í leiktímana sem boðið er upp á í allan vetur fyrir börn fædd 2005 og 2006 og eru sjálfbjarga í lyftur. Námskeiðsgjald greiðist í fyrsta tíma.