Byrjendakennsla.

Áætlað er að byrjendakennslan hefjist mánudaginn 10. janúar ef næg þátttaka hefur fengist og aðstæður verða góðar. Námskeiðið er ætlað fyrir börn fædd árið 2006 og fyrr.Skráning fer fram á skíðasvæðinu í síma 4661010 eða á staðnum á opnunartíma fyrir laugardaginn 8. janúar. Námskeiðsgjald er 10.000 kr. og er leiktímagjald innifalið í því verði en um leið og börnin eru orðin sjálfbjarga í lyftur færast þau yfir í leiktímana sem boðið er upp á í allan vetur fyrir börn fædd 2005 og 2006 og eru sjálfbjarga í lyftur. Námskeiðsgjald greiðist í fyrsta tíma. Nánari upplýsingar hér á síðunni sunnudaginn 9. janúar.