Byrjendakennsla

Byrjendakennsla á skíðum fyrir börn Námskeið fyrir byrjendur hefst þriðjudaginn 31. janúar hjá Skíðafélagi Dalvíkur. Námskeiðið stendur í fimm daga og er ætlað börnum fæddum 2012 og fyrr. Skráning fer fram á skíðasvæðinu í síma 466 1010 (14:30-19:00) eða á staðnum á opnunartíma fyrir kl. 16:00 sunnudaginn 29. janúar. Námskeiðsgjald er 12.000 kr. og greiðist í fyrsta tíma, en leiktíma-, og æfingagjald er innifalið í því. Þegar börnin eru orðin sjálfbjarga á skíðum og í lyftu hafa þau möguleika á áframhaldandi þátttöku í æfingum út veturinn, 2011 og 2012 í leiktímum og 2010 í æfingum með 1. bekk o.s.frv. Hægt er að leigja skíðabúnað fyrir börnin án endurgjalds meðan á námskeiðinu stendur. Þá býðst foreldrum frítt á skíði, auk þess að fá leigðan skíðabúnað án endurgjalds tvo af námskeiðsdögum. Kennsla verður eftirfarandi: Þriðjudaginn 31. jan kl 16:30 -17:30 Miðvikudaginn 1. feb kl 16:30 -17:30 Fimmtudaginn 2. feb kl 16:30 -17:30 Mánudaginn 6. feb kl 16:30 -17:30 Þriðjudaginn 7. feb kl 16:30-17:30 Nánari upplýsingar á skíðasvæðinu eða hjá Hörpu Rut í síma 866-3464