Byrjendakennsla á skíðum

Byrjendakennsla fyrir börn fædd árið 2002 og fyrr hefst föstudaginn 12. janúar n.k. kl. 17:00. Námskeiðið verður í heild 8 tímar en næstu tímar verða laugardaginn 13. janúar og sunnudaginn 14. janúar kl. 11-12 báða dagana. Skráning fer fram á skíðasvæðinu, í síma 4661010 eða á staðnum við upphaf námskeiðs. Námskeiðsgjald er 8.000 kr og er leiktímagjald innifalið í því verði en um leið og börnin eru orðin sjálfbjarga í lyftur færast þau yfir í leiktímana sem boðið er upp á í allan vetur. Vinsamlegast athugið að námskeiðsgjald á að greiða ekki seinna en í öðrum tíma þ.e. laugardaginn 13. janúar.