17.01.2014
Námskeið fyrir byrjendur hefst n.k fimmtudag þann 23. janúar hjá Skíðafélagi Dalvíkur. Námskeiðið stendur í fimm daga og er ætlað börnum fæddum 2009 og fyrr. Skráning fer fram á skíðasvæðinu í síma 466 1010 eða á staðnum á opnunartíma fyrir kl. 17:00 miðvikudaginn 22. janúar.
Námskeiðsgjald er 9.000 kr. og greiðist í fyrsta tíma, en leiktíma-, og æfingagjald er innifalið í því. Þegar börnin eru orðin sjálfbjarga á skíðum og í lyftu hafa þau möguleika á áframhaldandi þátttöku í æfingum út veturinn, 2008 og 2009 í leiktíma og 2007 í æfingum með 1. bekk o.s.frv. Hægt er að leigja skíðabúnað fyrir börnin án endurgjalds meðan á námskeiðinu stendur. Þá býðst foreldrum frítt á skíði, auk þess að fá leigðan skíðabúnað án endurgjalds tvo af námskeiðsdögum.
Kennsla verður eftirfarandi:
Fimmtudaginn 23. jan kl 16:30 -17:30
Föstudaginn 24. jan kl 16:30 -17:30
Laugardaginn 25. jan kl 12:00 -13:00
Sunnudaginn 26. jan kl 12:00 -13:00
Þriðjudaginn 28. jan kl 16:30 -17:30
Nánari upplýsingar á skíðasvæðinu eða hjá Hörpu Rut í síma 866-3464