Byrjendakennsla á skíðum fyrir börn

Námskeið fyrir byrjendur hefst miðvikudaginn 28. janúar hjá Skíðafélagi Dalvíkur. Námskeiðið stendur í fimm daga og er ætlað börnum fæddum 2010 og fyrr. Skráning fer fram á skíðasvæðinu í síma 466 1010 eða á staðnum á opnunartíma fyrir kl. 17:00 þriðjudaginn 27. janúar. Námskeiðsgjald er 9.000 kr. og greiðist í fyrsta tíma, en leiktíma-, og æfingagjald er innifalið í því. Þegar börnin eru orðin sjálfbjarga á skíðum og í lyftu hafa þau möguleika á áframhaldandi þátttöku í æfingum út veturinn, 2009 og 2010 í leiktímum og 2008 í æfingum með 1. bekk o.s.frv. Hægt er að leigja skíðabúnað fyrir börnin án endurgjalds meðan á námskeiðinu stendur. Þá býðst foreldrum frítt á skíði, auk þess að fá leigðan skíðabúnað án endurgjalds tvo af námskeiðsdögum. 

Kennsla verður eftirfarandi: Miðvikudaginn 28. jan kl 16:30 -17:30 Fimmtudaginn 29. jan kl 16:30 -17:30 Laugardaginn 31. jan kl 11:00 -12:00 Sunnudaginn 1. feb kl 11:00 -12:00 
Miðvikudaginn 4. feb kl 16:30 -17:30 Nánari upplýsingar á skíðasvæðinu eða hjá Hörpu Rut í síma 866-3464