10.02.2012
Nýtt námskeið fyrir byrjendur hefst föstudaginn 24. febrúar hjá Skíðafélagi Dalvíkur. Námskeiðið stendur í fimm daga og er ætlað börnum fæddum 2007 og fyrr. Skráning fer fram á skíðasvæðinu í síma 466 1010 eða á staðnum á opnunartíma fyrir kl. 17:00 fimmtudaginn 23. febrúar.
Námskeiðsgjald er 9.000 kr. og er leiktíma-, og æfingagjald innifalið í því. Þegar börnin eru orðin sjálfbjarga á skíðum og í lyftu hafa þau möguleika á áframhaldandi þátttöku í æfingum út veturinn, 2006 og 2007 í leiktímum og 2005 í æfingum með 1. bekk o.s.frv.
Námskeiðsgjald greiðist í fyrsta tíma. Nánari upplýsingar hjá Hörpu Rut í síma 866-3464 og Björgvini í síma 897-1224. Nánari upplýsingar um tímasetningar og fyrirkomulag kennslunnar verður birt hér á síðunni fimmtudaginn 23. febrúar.