08.01.2013
Námskeið fyrir byrjendur hefst föstudaginn 11. janúar hjá Skíðafélagi Dalvíkur. Námskeiðið stendur í fimm daga og er ætlað börnum fæddum 2008 og fyrr. Skráning fer fram á skíðasvæðinu í síma 466 1010 eða á staðnum á opnunartíma fyrir kl 18:00 fimmtudaginn 10. janúar!
Námskeiðsgjald er 9000 kr og er leiktíma-, og æfingagjald innifalið í því. Þegar börnin eru orðin sjálfbjarga í lyftu hafa þau möguleika á áframhaldandi þátttöku í æfingum út veturinn, 2007 og 2008 í leiktímum, 2006 í æfingum með fyrsta bekk o.s.frv.
Námskeiðsgjald greiðist í fyrsta tíma. Nánari upplýsingar á skíðasvæði eða hjá Hörpu Rut í síma 866 3464.