Byrjendanámskeið fyrir börn

Námskeið fyrir byrjendur hefst mánudaginn 18. janúar hjá Skíðafélagi Dalvíkur. Námskeiðið stendur í fimm daga og er ætlað börnum fæddum 2011 og fyrr. Skráning fer fram á skíðasvæðinu í síma 466 1010 eða á staðnum á opnunartíma fyrir kl. 16:00 sunnudaginn 17. janúar. Námskeiðsgjald er 10.000 kr. og greiðist í fyrsta tíma, en leiktíma-, og æfingagjald er innifalið í því. Þegar börnin eru orðin sjálfbjarga á skíðum og í lyftu hafa þau möguleika á áframhaldandi þátttöku í æfingum út veturinn, 2010 og 2011 í leiktímum og 2009 í æfingum með 1. bekk o.s.frv. Hægt er að leigja skíðabúnað fyrir börnin án endurgjalds meðan á námskeiðinu stendur. Þá býðst foreldrum frítt á skíði, auk þess að fá leigðan skíðabúnað án endurgjalds tvo af námskeiðsdögum. Kennsla verður eftirfarandi: Mánudaginn 18. jan kl. 16:30 -17:30 Þriðjudaginn 19. jan kl. 16:30 -17:30 Laugardaginn 23. jan kl. 10:30 -11:30 Sunnudaginn 24. jan kl. 10:30 -11:30 Mánudaginn 25. jan kl. 16:30-17:30 Nánari upplýsingar á skíðasvæðinu eða hjá Hörpu Rut í síma 866-3464