Dalvíkurmót 2015, 9 ára og yngri.

Ákveðið hefur verið að halda Dalvíkurmót fyrir 9 ára og yngri n.k. laugardag, 28. febrúar. Eingöngu verður keppt í stórsvgi í þetta sinn, en Dalvíkurmót í svigi fyrir 8-9 ára verður haldið síðar. 7 ára og yngri keppa eingöngu í stórsvigi. Allir þátttakendur fá viðurkenningu fyrir þátttöku. Skráning á staðnum og afhending númera frá kl. 10:00 til 10:45 laugardaginn 28. febrúar. Brautarskoðun kl. 11:00 til 11:30 Start kl. 11:45 Seinni ferð strax að lokinni fyrri ferð. Mótanefnd.