Dalvíkurmót 7-8. febrúar

Dalvíkurmót fyrir 15 ára og yngri verður haldið í Böggvistaðarfjalli um helgina. Dagskrá mótsins og upplýsingar um skráningar eru hér fyrir neðan: Laugardagur 7. febrúar – STÓRSVIG 10:15 Afhending númera í flokki 12 - 15 ára 10:30 Skoðun hefst hjá 12 - 15 ára 11:00 Start fyrri ferð 12 - 15 ára Start seinni ferð 12 - 12 ára strax eftir að fyrri ferð líkur. 11:45 Afhending númera í flokki 8-11 ára 12:00 Skoðun hefst hjá 8-11 ára 12:30 Start fyrri ferð hjá 8-11 ára Start seinni ferð 8-11 ára strax eftir að fyrri ferð líkur. 13:00 Afhending númera í flokki 7 ára og yngri 13:15 Skoðun hefst hjá 7 ára og yngri 13:45 Start fyrri ferð hjá 7 ára og yngri Start seinni ferð 7 ára og yngri strax eftir að fyrri ferð líkur. Verðlaunaafhending fyrir stórsvig á skafli að keppni lokinni, kl ca. 14:30 Sunnudagur 8. febrúar – SVIG 13:00 Afhending númera í flokki 8 - 11 ára 13:15 Skoðun hefst hjá 8 - 11 ára 13:45 Start fyrri ferð 8 - 11 ára Start seinni ferð 8 - 11 ára strax eftir að fyrri ferð líkur. 14:15 Afhending númera í flokki12-15 ára 14:30 Skoðun hefst hjá 12-15 ára 15:00 Start fyrri ferð hjá 12-15 ára Start seinni ferð 12-15 ára 15 strax eftir að fyrri ferð líkur. Verðlaunaafhending fyrir svig á skafli að keppni lokinni kl ca 16 ATH. 7 ára og yngri keppa ekki í svigi en leikjabraut verður uppi fyrir 7 ára og yngri á sunnudeginum. Mótið er opið öllum til þátttöku en í flokki 10 ára og eldri eiga eingöngu þeir sem keppa fyrir hönd Skíðafélags Dalvíkur möguleika á verðlaunum. Veitt verða verðlaun fyrir fyrsta til þriðja sæti í flokkum 10-11 ára, 12-13 ára og 14-15 ára í báðum kynjum: Allir 9 ára og yngri fá viðurkenningu fyrir þátttöku. Skráning í Brekkuseli eða á tölvupósti skidalvik@gmail.com fyrir kl. 20:00 fimmtudaginn 5. febrúar 2015. Ef frekari upplýsinga er þörf þá sendið póst á skidalvik@gmail.com