Dalvíkurmót í stórsvigi í flokkum 8 til 9 ára og í flokki 7 ára og yngri fór fram í dag. Fyrirhugað er að halda Dalvíkurmóti í svigi fyrir 8-9 ára síðar en 7 ára og yngri keppa eingöngu í stórsvigi.
Þáttaka var með ágætum og fengu allir keppendur verðlaunapening um hálsinn að loknu móti.
Í meðfylgjandi skjali er hægt að sjá tímana hjá öllum þátttakendum.
Mótanefnd þakkar börnum og foreldrum fyrir þátttökuna og minnir á í leiðinni að n.k. föstudag og laugardag fer fram hið árlega Jónsmót.
Mótanefnd.