23.01.2012
Hið árlega Dalvíkurmót fer fram um næstu helgi. Í ár höfum við fengið styrktaraðila að mótinu og mun Intersport gefa alla verðlaunapeninga, þrefalt húrra fyrir þeim. Dagskrá mótsins er svohljóðandi:
Laugardagur 28. janúar - SVIG
09:00 Afhending númera í flokki 11 ára og eldri
09:15 Skoðun hefst hjá 11 ára og eldri
09:45 Start fyrri ferð 11 ára og eldri
10:30 Start seinni ferð 11 ára og eldri
11:30 Afhending númera í flokki 10 ára og yngri
11:45 Skoðun hefst hjá 10 ára og yngri ára
12:15 Start fyrri ferð hjá 9-10 ára
12:45 Start fyrri ferð hjá 8 ára og yngri
13:45 Start seinni ferð 9-10 ára
14:30 Start seinni ferð 8 ára og yngri
Sunnudagur 29. janúar - STÓRSVIG
09:00 Afhending númera í flokki 11 ára og eldri
09:15 Skoðun hefst hjá 11 ára og eldri
09:45 Start fyrri ferð 11 ára og eldri
10:30 Start seinni ferð 11 ára og eldri
11:15 Verðlaunaafhending 11 ára og eldri (3 fyrstu í hverri grein fá verðlaun)
11:30 Afhending númera í flokki 10 ára og yngri
11:45 Skoðun hefst hjá 10 ára og yngri ára
12:15 Start fyrri ferð hjá 9-10 ára
12:45 Start fyrri ferð hjá 8 ára og yngri
13:45 Start seinni ferð 9-10 ára
14:30 Start seinni ferð 8 ára og yngri
15:15 Verðlaunaafhending 10 ára og yngri (ATH allir keppendur 10 ára og yngri fá verðlaun)
Mótið er opið öllum til þátttöku en í flokki 11 ára og eldri eiga eingöngu þeir sem keppa fyrir hönd Skíðafélags Dalvíkur möguleika á verðlaunum.
Skráning í Brekkuseli eða á tölvupósti snator@internet.is fyrir kl. 20:00 fimmtudaginn 26. janúar 2012. Ef frekari upplýsinga er þörf þá sendið póst á snator@internet.is.