Esther og Torfi á keppnisstað.
Þau Esther Ösp og Torfi Jóhann fóru utan með Íslenska hópnum fyrir helgi og hafa æft á keppnissvæðinu um helgina. Setning leikanna fór fram á laugardaginn.
Aðstæður ytra eru eins og svo víða annarsstar í heiminum frekar erfiðar, en snjóað hefur mikið undanfarna daga og líkur á að hliðra þurfi til keppnisgreinum. Við munum upplýsa ykkur eins og kostur gefst.
Hægt verður að fylgjast með beinum útsendingum frá leikunum hér
Uppfært:
Nú liggur nýtt keppnisplan fyrir alpagreinar Eyof2023:
Torfi Jóhann:
Svig: á morgun þriðjudag 24.jan
Stórsvig: Föstudag 27.jan
Esther Ösp:
Svig: Miðvikudag 25. jan
Stórsvig: Fimmtudag 26.jan
Risasvig: Laugardag 28.jan