06.04.2015
Firmakeppni Skíðafélags Dalvíkur 2015 fór fram í dag í blíðskaparveðri í Böggvisstaðarfjalli.
Keppt er í samhliðasvigi með forgjöf og útsláttar fyrirkomulagi þar til einn stendur uppi sem sigurvegari. Forgjöfin virkar þannig að keppendur starta á mismunandi stað í brautinni eftir aldri, þeir yngri starta neðar en hinir eldri.
Keppnin var að venju æsispennandi og óvænt úrslit urðu í ýmsum einvígíum, en í fyrstu þremur sætunum urðu:
1. sæti Makús Máni Pétursson, fyrir Skiltagerð Norðurlands ehf
2. sæti Mod Björgvinsson, fyrir Múlatind ehf
3. sæti Daníel Rosazza, fyrir Bruggsmiðjuna ehf
Við þökkum öllum keppendum, áhorfendum og síðast en ekki síst öllum þeim styrktaraðilum sem styrktu mótið í ár fyrir þátttökuna.