Team Trölli í flokki 14-15 ára.
Um helgina er elsti keppnishópur skíðafélagsins staddur í keppnisferð á Seyðisfirði. Keppt er í tveimur stórsvigum. Hópurinn telur 11 keppendur og 8 foreldra. Í dag (laugardag 17.mars) var keppt við góðar aðstæður. Sól, logn og 3°C. Mótið gekk vel og var hópurinn að standa sig mjög vel. Úrslit voru eftirfarandi í stórsvigi dagsins:
12 ára Drengir
Torfi Jóhann Sveinsson 2 sæti
13 ára Stúlkur
Rebekka Lind Aðalsteinsdóttir 3 sæti
13 ára Drengir
Brynjólfur Máni Sveinsson 1 sæti
14 ára Drengir
Stefán Daðason 2 sæti
15 ára Stúlkur
Lovísa Rut Aðalsteinsdóttir 5 sæti
Valgerður María Júlíusdóttir 9 sæti
Kristrún Lilja Sveinsdóttir 10 sæti
15 ára Drengir
Guðni Berg Einarsson 1 sæti
Birgir Ingvason 3 sæti
Daníel Máni Hjaltason 10
Daði Hrannar Jónsson (Hlektist á í fyrri ferð)






