08.04.2009
Andrésar Andarleikarnir fara fram dagana 22-25 apríl nk. Fundur verður með foreldrum Andresarfara í Brekkuseli fimmtudaginn 16.april frá kl 20:00 til 20:45. Foreldrar þeirra barna sem eru að fara á leikanna í fyrsta skipti, þ.e.a.s fyrstu bekkinga sem eru fædd 2002 eru vinsamlegast beðnir að mæta kl. 19:30, aðrir mæta kl: 20:00
Athugið að foreldrar barna sem eru í fyrsta og öðrum bekk verða að fylgja börnum sínum á leikanna.
Greiða þarf þátttökugjald á leikanna á fundinum og vinsamlegast athugið að aðeins er hægt að greiða með peningum eða debet korti.
Foreldrafélag Skíðafélags Dalvíkur