Fyrsti opnunardagurinn

Fyrsti opnunardagurinn hjá okkur gekk alveg ljómandi vel og töluverður fjöldi hungraðs skíða- og brettafólks mætti í brekkurnar. Á morgun, laugardag verður svæðið lokað þar sem veðurspáin gerir ráð fyrir stormi og engu skíðaveðri en við vonumst til að geta opnað aftur á sunnudaginn. Nánari upplýsingar verða hér á síðunni á laugardagskvöld. Opnunartíminn hjá okkur fram að jólum verður eftirfarandi: laugardaga og sunnudaga verður opið kl. 11-15 Mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga verður opið kl. 16-19 Sjáumst í fjallinu!