16.02.2002
Í dag var keppt í stórsvigi kvenna og karla.
Í kvennaflokki varð þrefaldur Akureyrskur sigur, Brynja Þorsteinsdóttir varð fyrst á tímanum 1:49,61, Hrefna Dagbjartsdóttir varð önnur á 1:53,42 og Arna Arnardóttir varð þriðja á 1:54,34.
Í flokki 15-16 ára varð Elín Arnarsdóttir, Ármanni, fyrst á tímanum 1:54,97, önnur Íris Daníelsdóttir, Dalvík, á 1:57,78 og þriðja varð Agnes Þorsteinsdóttir, SLR, á 1:58,31.
Í karlaflokki vann Arnar Gauti Reynisson, Ármanni á tímanum 1:45,78, annar varð Ingvar Steinarsson, Akureyri, á tímanum 1:46,30 og þriðji varð Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Ármanni, á 1:47,38.
Í flokki 15-16 ára varð fyrstur Kristmann Hjálmarsson, Ármanni, á tímanum 1:54,19, annar varð Björn Þór Ingason, Breiðabliki, á 1:54,89 og þriðji varð Einar Ingvi Andrésson, Siglufirði á tímanum 1:57,77.