Gröftur á fullu

Það er mikið um að vera á Skíðasvæði Dalvíkur þessa dagana.
En Steypustöð Dalvíkur er á fullu að grafa fyrir grunninum að nýju aðstöðuhúsi
skíðasvæðisins. Þegar byggingaframkvæmdir fara af stað munum við í skíðafélaginu
biðla til okkar félagsmanna og ath. hvort einhverjir verði aflögu tíma til að aðstoða
við uppbyggingu. Þá er átt við í sérstæk verkefni líkt og járnabindingar, málningu og annað sem
til fellur.
Eins og margir hafa tekið eftir er heimasíðan ekki í fullri virkni, vefmyndavélar og veðurstöð 
virka ekki, en þetta útskýrist af því að ljósleiðarin er ekki tengdur sökum moksturs.
Það verður vonandi komið í lag fljótlega.
Með kveðju.