Helgi og Guðni Berg á Alpecimbra FIS Children Cup

Um sl. helgi fór fram keppni á "Alpecimbra FIS Children Cup" (áður Topolino) á Ítalíu. Skíðasamband Íslands sendi 10 fulltrúa til leiks og þar á meðal voru okkar menn þeir Helgi Halldórsson og Guðni Berg Einarsson. Báðir stóðu þeir sig mjög vel, en mótið er eitt sterkasta barna/unglingamót sem haldið er. Úrslit íslensku keppendanna var eftirfarandi: Svig - Stúlkur U16 40. Fríða Kristín Jónsdóttir 44. Embla Rán Baldursdóttir 49. Nanna Kristín Bjarnadóttir Svig - Drengir U16 37. Helgi Halldórsson 49. Andri Gunnar Axelsson Guðni Berg Einarsson lauk ekki keppni. Stórsvig - Stúlkur U14 24. Ólafía Elísabet Einarsdóttir 37. Hildur Védís Heiðarsdóttir Stórsvig - Drengir U14 35. Örvar Logi Örvarsson 41. Markús Loki Gunnarsson