Jakob Helgi Bjarnason íþróttamaður Dalvíkurbyggðar.

Í dag var Jakob Helgi Bjarnason kosinn íþróttamaður Dalvíkurbyggðar. Jakob Helgi hefur lagt mikið á sig undanfarin ár til að ná árangri í skíðaíþróttinni og í dag er hann í fremstu röð í heiminum í sínum aldursflokki. Árið 2012 varð Jakob Helgi tvöfaldur Íslandsmeistari í karlaflokki þá 16 ára hann varð einnig Bikarmeistari SKÍ í 15 - 16 ára flokki og unglingameistari í svigi, alpatvíkeppni og samhliðasvigi. Til hamingju Jakob Helgi. Skíðafélag Dalvíkur.