Jónsmót 2004

MINNINGARMÓT UM JÓN BJARNASON 13. OG 14. MARS 2004. Skíðafélag Dalvíkur boðar til árlegs skíðamóts með sundívafi sem haldið er til minningar um Jón Bjarnason sem var einn af stofnendum félagsins. Mótið fer fram dagana 13. og 14. mars n.k. Mótið er ætlað 11 og 12 ára börnum alls staðar af landinu. Keppni er að hluta til með óhefðbundnu sniði, keppt verður í stórsvigi (hefðbundið) 50 metra bringusundi og svigi (hefðbundið). Vegleg verðlaun verða veitt fyrir hverja grein í hvorum aldursflokki og einnig verða verðlaun fyrir tvíkeppni, stórsvig/sund. Mótsgjald verður krónur 1500 á keppanda. Þetta er í áttunda skipti sem minningarmót um Jón Bjarnason er haldið (það féll niður í fyrra vegna snjóleysis) en það hefur tekist mjög vel og vakið mikla hrifningu þeirra sem hingað hafa komið og tekið þátt. Það er von okkar að nú takist vel til sem áður og að mótið verði skemmtilegur árlegur viðburður sem börn á þessum aldri hlakka til að taka þátt í. Á laugardeginum 13. mars verður síðan Bjartsmótið sem er fyrir 9 og 10 ára krakka. Keppt verður í stórsvigi hefðbundið. Startað verður strax eftir að Jónsmóts stórsviginu líkur. Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta og eigi hér á Dalvík góða og skemmtilega helgi. DRÖG AÐ DAGSKRÁ Laugardagur 13. mars: Kl. 10: 00 - Start - stórsvig Kl. 13: 00 - Start - sund í Sundlaug Dalvíkur (farastjórahóf að lokinni keppni) Sunnudagur 14. mars: Kl. 10: 00 - Start - svig Verðlaunaafhending og mótsslit að lokinni keppni á sunnudag. Ath. betri ferð í stórsvigi gildir í tvíkeppninni sund/stórsvig. Mótshaldarar áskilja sér rétt til breytinga á dagskrá ef þörf krefur. ÞÁTTTÖKUTILKYNNINGAR ÞURFA AÐ BERAST Í SÍÐASTA LAGI MIÐVIKUDAGINN 10. MARS MEÐ TÖLVUPÓSTI Á NETFANG: skidalvik@skidalvik.is EÐA Í FAX 4661096. EINNIG TEKUR JÓHANN BJARNASON VIÐ SKRÁNINGUM Í SÍMA 8663467 Frekari upplýsingar fram að móti gefur Jóhann Bjarnason í síma 466-1478 eða í gsm: 866-3467. Upplýsingar um gistingu eru gefnar í síma 466-1010.