Jónsmót 2009

Minningarmót um Jón Bjarnason fer fram um næstu helgi. Skíðafélag Dalvíkur boðar til árlegs skíðamóts með sundívafi sem haldið er til minningar um Jón Bjarnason, sem var einn af stofnendum félagsins. Þetta er í tólfta skipti sem mótið er haldið en það hefur tekist mjög vel og vakið mikla hrifningu þeirra sem hingað hafa komið og tekið þátt. Það er von okkar að nú takist vel til sem áður og að mótið verði skemmtilegur árlegur viðburður sem börn á þessum aldri hlakka til að taka þátt í. Mótið fer fram dagana 6.- 8. mars n.k. Það er ætlað 9-12 ára börnum af öllu landinu. Keppni er að hluta til með óhefðbundnu sniði, keppt verður í stórsvigi (1 umferð), bringusundi og svigi (2 umferðir). Vegleg verðlaun verða veitt fyrir hverja grein í hverjum aldursflokki og einnig verða verðlaun fyrir tvíkeppni, þ.e. stórsvig/sund. Mótsgjald er 2000 krónur á keppanda. DRÖG AÐ DAGSKRÁ Föstudagur 6. mars Kl. 20:00 Fararstjórafundur í Sundlaug Dalvíkur Kl 20-22:00 Sundlaugarpartí í Sundlaug Dalvíkur Laugardagur 7. mars Kl. 9:30 Afhending númera Kl. 9:45 Brautarskoðun Kl. 10:30 Start-stórsvig 9-12 ára Kl. 13:00 Start- bringusund í Sundlaug Dalvíkur Kl. 16:00 Kaffisamsæti fyrir fararstjóra og starfsmenn mótsins Kl. 20:00 Kvöldvaka fyrir keppendur á mótinu Sunnudagur 8. mars: Kl. 9:30 Afhending númera Kl. 9:45 Brautarskoðun Kl. 10:30 Start-svig 9-12 ára Veitingar, verðlaunaafending og mótsslit í Brekkuseli að móti loknu. Mótshaldarar áskilja sér rétt til breytinga á dagskrá. Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta og eigi hér á Dalvík góða og skemmtilega helgi. Þátttöku skal tilkynna á netfangið snator@internet.is fyrir þriðjudaginn 3. mars n.k. Frekari upplýsingar um mótið gefa Jóhann Bjarnason í síma 866-3467 og Snæþór Arnþórsson í síma 659-3709. Upplýsingar um gistingu fást hjá Gerði í síma 8482610. Bestu kveðjur, Skíðafélag Dalvíkur STYRKTARAÐILI MÓTSINS ER HAMRAFELL E.H.F.