26.02.2012
Skíðafélag Dalvíkur boðar til árlegs skíðamóts með sundívafi sem haldið er til minningar um Jón Bjarnason, sem var einn af stofnendum félagsins. Mótið fer fram dagana 16.- 17. mars n.k. Það er ætlað 9-12 ára börnum af öllu landinu. Keppni er að hluta til með óhefðbundnu sniði, keppt verður í stórsvigi (1 umferð), 25 metra bringusundi í 9-10 ára flokki, 50 m bringusundi í 11-12 ára flokki og svigi (2 umferðir). Verðlaun verða veitt fyrir hverja grein í hverjum aldursflokki og einnig verða verðlaun fyrir tvíkeppni, þ.e. stórsvig/sund. Mótsgjald er 3.000 krónur á keppanda, innifalið í mótsgjaldi eru lyftugjöld fyrir keppendur, veitingar á mótslitum og aðgangur í sundlaugarpartý.
DAGSKRÁ
Föstudagur 16. mars - Kvöldmót keyrt í ljósum
Kl. 18:30 Brautarskoðun 9-12 ára
Kl. 19:15 Start 9-10 ára (ath aðeins ein ferð)
Kl. 20:15 Start 11-12 ára (ath aðeins ein ferð)
Kl. 21:15 Fararstjórafundur í Brekkuseli
Laugardagur 17. mars - Svig og sund
Kl. 11:15 Brautarskoðun 11-12 ára
Kl 12:00 Fyrri ferð svig 11-12 ára, seinni ferð verður farin strax að lokinni fyrri ferð
Kl. 13:30 Brautarskoðun 9-10 ára
Kl. 14:30 Fyrri ferð svig 9-10 ára, seinni ferð verður farin strax að lokinni fyrri ferð
Kl. 17:00 Start sund
Kl 19-20 Sundlaugarpartí í Sundlaug Dalvíkur
Kl 20 Verðlaunaafhending og mótslit
Sunnudagur 18. mars
Varadagur, hugsanlega sameiginleg æfing ef tímaplanið gengur upp
Veitingar, verðlaunaafhending og mótsslit í andyri Íþróttamiðstöðvar Dalvíkurbyggðar (Sama húsnæði og sundlaugin er í) að móti loknu.
Mótshaldarar áskilja sér rétt til breytinga á dagskrá.
Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta og eigi hér á Dalvík góða og skemmtilega helgi. Þátttöku skal tilkynna á netfangið jonsmot@gmail.com fyrir þriðjudaginn 13. mars n.k. og jafnframt skal millifæra mótsgjald á reikningsnúmer ????? ATH skrá þarf nafn, aldur og félag keppenda.
Ef frekari upplýsinga er óskað þá er hægt að senda tölvupóst á netfangið jonsmot@gmail.com
Bestu kveðjur,
Mótanefnd Skíðafélags Dalvíkur