Jónsmót 2014

Jónsmót. Minningarmót um Jón Bjarnason 28. febrúar - 1. mars 2014.Skíðafélag Dalvíkur boðar til árlegs skíðamóts með sundívafi sem haldið er til minningar um Jón Bjarnason, sem var einn af stofnendum félagsins. Mótið fer fram dagana 28. feb til 1. mars n.k. Það er ætlað 9-13 ára börnum af öllu landinu. Keppni er að hluta til með óhefðbundnu sniði, keppt verður í stórsvigi (1 umferð), 25 metra bringusundi í 9-10 ára flokki, 50 m bringusundi í 11-13 ára flokki og svigi (2 umferðir). Verðlaun verða veitt fyrir hverja grein í hverjum aldursflokki og einnig verða verðlaun fyrir tvíkeppni, þ.e. stórsvig/sund. DAGSKRÁ Föstudagur 28. feb - Kvöldmót keyrt í ljósum Kl. 17:00 Afhending númera og lyftukorta í Brekkuseli. ATH fararstjórar mæti fyrir hönd viðkomandi félags. Kl. 18:30 Brautarskoðun 9-10 ára Kl. 19:15 Start 9-10 ára (ath aðeins ein ferð) Kl. 19:45 Brautarskoðun 11-13 ára Kl. 20:30 Start 11-13 ára (ath aðeins ein ferð) Verðlaunaafhending og blysför strax að keppni lokinni Laugardagur 1. mars - Svig og sund Kl. 10:00 Brautarskoðun 11-13 ára fyrri ferð Kl 10:45 Fyrri ferð svig 11-13 ára Kl: 11:15 Brautarskoðun 9-10 ára fyrri ferð Kl: 12:00 Fyrri ferð svig 9-10 ára Kl: 13:00 Brautarskoðun 11-13 ára seinni ferð Kl: 13:45 Seinni ferð svig 11-13 ára Kl: 13:45 Brautarskoðun 9-10 ára seinni ferð Kl. 14:30 Seinni ferð svig 9-10 ára Kl. 17:30 Start sund Pizzuveisla, verðlaunaafhending og mótslit strax að sundi loknu. Sunnudagur 2. mars er varadagur ef veður verður til vandræða. Veitingar, verðlaunaafhending og mótsslit verða í andyri Íþróttamiðstöðvar Dalvíkurbyggðar (Sama húsnæði og sundlaugin er í) að móti loknu. Mótshaldarar áskilja sér rétt til breytinga á dagskrá. Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta og eigi hér á Dalvík góða og skemmtilega helgi. Bestu kveðjur, Mótanefnd Skíðafélags Dalvíkur