JÓNSMÓT MINNINGARMÓT UM JÓN BJARNASON 11-12. Mars

Skíðafélag Dalvíkur boðar til árlegs skíðamóts með sundívafi sem haldið er til minningar um Jón Bjarnason, sem var einn af stofnendum félagsins. Mótið fer fram dagana 11-12. mars n.k. Það er ætlað 9-13 ára börnum af öllu landinu. Keppni er að hluta til með óhefðbundnu sniði, keppt verður í stórsvigi (1 umferð), 25 metra bringusundi í 9-10 ára flokki, 50 m bringusundi í 11-13 ára flokki og svigi (2 umferðir). Verðlaun verða veitt fyrir hverja grein í hverjum aldursflokki og einnig verða verðlaun fyrir tvíkeppni, þ.e. stórsvig/sund. Vinsamlegast takið helgina frá, nánari upplýsingar með dagskrá og tilheyrandi verða sendar út síðar.