Jónsmótið 2008 í samstarfi við TOYOTA-AKUREYRI

Skíðafélag Dalvíkur boðar til árlegs skíðamóts með sundívafi sem haldið er til minningar um Jón Bjarnason, sem var einn af stofnendum félagsins. Mótið fer fram dagana 7.- 9. mars n.k. Það er ætlað 9-12 ára börnum af öllu landinu. Keppni er að hluta til með óhefðbundnu sniði, keppt verður í stórsvigi (1 umferð), 50 metra bringusundi og svigi (2 umferðir). Vegleg verðlaun verða veitt fyrir hverja grein í hverjum aldursflokki og einnig verða verðlaun fyrir tvíkeppni, þ.e. stórsvig/sund. Við vonum að sem flestir sjái sér fært að mæta og eigi hér á Dalvík góða og skemmtilega helgi. Þátttöku skal tilkynna á netfangið skidalvik@skidalvik.is fyrir laugardaginn 4. mars n.k. Frekari upplýsingar um mótið gefa Jóhann Bjarnason í síma 866-3467 og Snæþór Arnþórsson í síma 659-3709. STYRKTARAÐILI MÓTSINS ER TOYOTA-AKUREYRI Föstudagur 7. mars Kl. 20:00 Fararstjórafundur í Brekkuseli Kl 20-22:00 Sundlaugarpartí í Sundlaug Dalvíkur Laugardagur 8. mars Kl. 9:30 Afhending númera Kl. 9:45 Brautarskoðun Kl. 10:30 Start-stórsvig 9-12 ára Kl. 13:00 Start- 50 m bringusund í Sundlaug Dalvíkur Kl. 16:00 Kaffisamsæti fyrir fararstjóra og starfsmenn mótsins Kl. 20:00 Kvöldvaka í Víkurröst fyrir keppendur á mótinu Sunnudagur 9. mars: Kl. 9:30 Afending númera Kl. 9:45 Brautarskoðun Kl. 10:30 Start-svig 9-12 ára Veitingar, verðlaunaafending og mótsslit í Brekkuseli að móti loknu.