Kópaþrek 2009

Kópaþrek verður haldið fyrir unglinga í aldurshópnum 13-16 ára (alpagreinum og skíðagöngu) helgina 18.-20. september nk. í Bláfjöllum. Kópaþrek er æfingabúðir þar sem markmiðið er að styrkja félagsleg tengsl unglinga í aldurshópnum 13-16 ára og auka þrek og þol þeirra. Þannig geta skíðakrakkar alls staðar af landinu eytt helginni saman við æfingar, fræðslu og skemmtun. Skíðafélögum er velkomið að senda fararstjóra með þátttakendum. Á bloggsíðunni http://kopathrek.blog.is/blog/kopathrek/ er að finna ýmsar upplýsingar um Kópaþrek og þar verða upplýsingar birtar um dagskrá o.fl. þegar nær dregur. Þátttökugjaldið er 15.000 krónur og í gjaldinu er allt innifalið, s.s. gisting, fullt fæði, fræðsla og skemmtum. Með ferðum frá Ísafirði/Akureyri/Egilsstöðum er gjaldið 18.000 kr. Þátttökugjaldið skal greiða inn á reikning skíðadeildar Breiðabliks: 0130-05-112373. Mikilvægt er að setja nafn barns í tilvísun. Við hvetjum alla til að skrá sig sem fyrst og í síðasta lagi 14. september nk., hjá Gísla Gíslasyni á netfanginu: bsmidjan@simnet.is. Gefa þarf upp nafn barns, kennitölu, heimilisfang og félag. Auk þess þarf að gefa upp nafn og símanúmer foreldra. Með bestu kveðju Kópaþreksnefnd Skíðadeild Breiðabliks