14.09.2011
Eftir að hafa flautað Kópaþrekið af 2010 ætlar Skíðadeild Breiðabliks að gera aðra tilraun og blása til Kópaþreks helgina 14. - 16. október nk.
Öllum skíðaiðkendum landsins á aldrinum 12-15 ára er hér með boðið að taka þátt (árg. 1996-1999).
Fyrir þá sem ekki þekkja þá er hugsunin á bak við Kópaþrekið að leyfa krökkunum að hittast, kynnast, taka þrekæfingar og keppa innbyrðis, bæði í hóp og einstaklingsþrautum og síðast en ekki síst að skemmta sér saman eina helgi og þétta þannig hópinn, án skiða. Þetta er jafnt fyrir keppendur í alpa- sem og norrænum greinum.
Endanlega dagskrá er ekki klár, en gróflega verður þetta þannig;
Föstudagur 14. okt.
Kl. 18 mæta þátttakendur við Smárann, íþróttahús Breiðabliks í Kópavogi þar sem farið verður með rútu upp í Breiðabliksskála í Bláfjöllum
þar sem verður byrjað á léttri hlaupaæfingu, kvöldmat og svo endað á kvöldvöku líkt og var í Kerlingafjöllum í gamla daga, gist er í skálanum yfir helgina.
Laugardagur 15. okt.
Morgunmatur
Hinar ýmsu þrekæfingar í Bláfjöllum fyrir hádegi undir stjórn vaskra þjálfara og íþróttakennara frá Breiðabliki.
Hádegismatur
Eftir hádegi verða svo hópakeppnir, sem kynntar verða á staðnum.
Seinnipartinn verður farið í sund og slakað á eftir átök dagsins.
Pizzuveisla
Kvöldskemmtun í skála sem á eftir að koma á óvart.
Sunnudagur 16. okt.
Morgunmatur
Pakkað saman og gengið frá
Farið með rútu niður í Smára þar sem keppt verður í einstaklingsgreinum, s.s. kassahoppi, langstökki, hlaupi o.fl.
Léttur hádegisverður
Kl. 14 Verðlaunaafhending, myndataka og Kópaþreki slitið.
Nánari dagskrá og tímasetningar verða sendar út þegar nær dregur.
Helgin mun kosta kr. 9.000.- á barn og er innifalið í því: rútuferðir á höfuðborgarsvæðinu, gisting í skála, matur og sundferð.
Þátttakendur eru vinsamlegast beðnir að skrá sig fyrir 20. september á netfangið heidurhjalta@gmail.com
Einnig er velkomið að hafa samband hvort heldur sem er með tölvupósti eða í síma 894-2997 ef einhverjar spurningar eru.
Nánari upplýsingar og dagskrá verða svo send út þegar nær dregur.
Með skíðakveðju
fyrir hönd Kópaþreksnefndar
Heiður Hjaltadóttir