Langar þig að læra á skíði eða fríska upp á skíðafærni??

Skíðafélag Dalvíkur býður upp á fullorðinskennslu fyrir byrjendur og minna vana. Námskeiðið er 5 skipti og verður kennt milli kl 19:45 - 21:00 öll skiptin. Við byrjum mánudagsinn 26.janúar. Næstu skipti verða miðvikudagur 28. janúar Fimmtudagur 29.janúar Mánudagur 2.febrúar Föstudagur 6.febrúar. Ef ekki viðrar til kennslu verða þeir tíma bættir upp með nýjum tímum. Námskeiðið kostar 10.000 kr. innifalið í því er leiðbeinandi, lyftukort og skíðabúnaður fyrir þá sem þurfa. Þá geta þátttakendur látið námskeiðsgjaldið ganga upp í árskort í fjallið kjósi þeir að kaupa sér slíkt að loknu námskeiði. Skráningar skulu berast í síma 466 1010 (Brekkusel), fyrir Sunnudag 25.janúar, eða á póstfang sveinntorfason@msn.com