Í tilefni Öskudags og vetrarfría í skólum þessa vikuna ætlum við að lengja opnunartímann hjá okkur og verður skíðasvæðið opið miðviku- fimmtu- og föstudag kl. 12-19.
Frá deginum í dag verður skíðasvæðið opið alla daga vikunnar. Virka daga kl. 15-19 og 10-16 um helgar.
Það hefur snjóað mikið s.l. daga og því púðursnjór um allt fjall!
Velkomin í Böggvisstaðafjall.